Sunday 26 May 2013

35 dagar í Partille Cup

Partille Cup

Í dag eru akkúrat 35 dagar í að stærsta yngri flokka mót heimsins, Partille Cup hefjist.
Í gegnum tíðina hefur alltaf verið mikið af íslenskum liðum sem fara á þetta mót og sumarið 2011 var Ísland  með um 450 keppendur, eða fimmta fjölmennasta þjóðin á mótinu það ár.   Fimm íslensk lið komust alla leið í 16 liða úrslitin og HK-drengir, fæddir 1998 gerðu betur og sigruðu mótið.

Í ár fara í kringum 590 keppendur frá Íslandi  og er upplifunin  mjög skemmtileg fyrir krakkana. Mótið er gríðarlega stórt umfangs og leikið er á gervigrasvöllum í Gautaborg.

Í bland við handboltann eru haldin böll og ýmislegt gert til skemmtunar. Glæsileg opnunarhátíð fer ávallt fram í hinni glæsilegu Scandinavium höll sem tekur um 15.000 manns í sæti. Þá fara öll liðin í Lisberg, sem er stærsti skemmtigarður Norður-Evrópu.

HK-drengir, fæddir 1998, unnu Partille Cup sumarið 2011 í sínum aldursflokk.

Hér að neðan má svo lesa nokkrar staðreyndir um mótið:
-Keppt er á yfir 60 völlum.
-Yfir 19.000 þátttakendur ár hvert frá yfir 50 þjóðum.
-Fleiri en 1000 lið.
-Um 270 dómarar.
-Yfir 4000 leikir (úrslitaleikirnir fara fram í hinni glæsilegu höll, Scandinavium).
-Yfir 3000 farastjórar og þjálfarar.
Hér að neðan má sjá opinbert myndband mótsins:

Hér að neðan má sjá myndbönd frá opnunarhátíðinni 2012:


No comments:

Post a Comment